Dr. Þórfríður
16.02.2008 10:09:57 / Guðný

Gone going gone

Everything's gone, get away, söng Jack Johnson og ég er honum sammála:

http://www.thorfridur.blogspot.com

muna það! Þetta er búið mál. Inni á nýju síðunni er nýtt blogg, nýjar myndir, svo allir að klikka á linkinn og kommenta hjá mér :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 21:46:52 / Guðný

ice ice baby

Halló, mesta og besta jólafríi nokkurn tíman er hér með lokið... eða því lauk þegar við komum aftur to the D in the K núna fyrir viku síðan. Æðislegt að vera svona lengi heima, fékk að upplifa vetur með snjó og öllu saman! Alveg magnað. En um leið og við stigum fæti hér á grundu fór ég í það að slökkva elda um allan bæ, það biðu náttúrulega bunkarnir af pósti hérna heima, og sumt bara misskilningur... En það þurfti að redda ýmsum málum, læra fyrir próf þurfti ég líka og stunda vinnuna mína, en fyrir það var ég frekar stressuð, þar sem ég er búin að flytja mig um set og segja upp. Fer þó ekki langt, bara aðeins innar í terminal 2 en boy og boy ég get ekki beðið, er pirruð á vinnuaðstöðu, launum og vinnufélögum sem elska allt drama og draga mig inn í mál sem ég reyni að forðast sem heitan eldinn! En já, prófið gekk glimrandi vel, og ég er í viku fríi núna, aldeilis margt sem á að gerast í þessu fríi en eins og alltaf verður það ekki að neinu... pff allt í lagi...

Á morgun er dinner með vinnunni og flugvalladjamm eftir það, vinna um helgina og aftur í skólann á mánudaginn... Sama rútínan, skrölta í strætó í klukkutíma, labba í næðingskulda... Já maður verður svo góðu vanur að vera á Íslandi, keyrandi allt oh unaður. Skella innkaupapokunum í skottið og ekki dröslast með þá í hvorri hendinni og axlirnar við það að poppa úr liðnum. Ég er líka í því ferli núna að venjast danska vatninu aftur... Það verður komið eftir viku, ég finn ennþá kalkbragðið. Sírenuvæl og umferð, frekar erfitt að venjast því aftur eftir mánaðar svefn í algjörri þögn og myrkri. Sveitasælan :) En man alive, það var frekar ljúft að komast í auða jörð og 4 gráður... versus -10° og snjóroghálka. Ég hef ekki séð svona mikinn vetur í áratug, það var svo gaman, 60 cm jafnfallinn snjór heima, tréin að sligast undan þunganum, svo ótrúlega fallegt! :)

 

Heima í Hveratúni

Brrrr kuldalegt

Vörðufell og hveragufan

Lítið frosið strá

Pretty pretty

Og Marín sys vígaleg með grýlukerti

 

Þetta var janúar í hnotskurn, ég kem svo með report á febrúar einhverntíman þegar fer að vora :p

 

Love

 

Guðný


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 21:50:52 / Guðný

Heima :)

Það er svo yndislegt að vera komin heim í sveit! Eftir flugferð dauðans, með barnagráti úr öllum áttum, var yndislegt að komast heim, er búin að sofa eins og kornabarn, bara sofa og sofa, og svo er ég búin að fara í eitt jólaboðparty og gista hjá Völu minni og hennar ektamanni. Biggi minn er líka kominn til landsins og farinn til AK city, já hann komst til landsins, þótt ótrúlegt megi virðast miðað við allt sem á undan gekk með flug rugl og já ég ætla ekki að lista það allt hér, það hljómar líka eins og lygasaga... Series of unfortunate events!! Núna er Þorlákur kallinn, er ekki búin að borða skötu enda borðum við ekki skemmdan mat á mínu heimili. Jólatréið er komið, beint úr skóginum og búið að skreyta það heldur betur. Ég held nú bara að ég sé komin í jólaskap, hlakka til að opna pakka og borða góðan mat og svo hlakka ég til að fara norður um áramótin...

Jæja, ég ætla að fara að horfa á jólamynd með fjölskyldunni, jii en væmið :) en fyrst nokkrar myndir

Þetta eru danskar eplaskífur.... sem hvorki innihalda epli né eru í laginu sem skífur... en alveg æðislegt á bragðið mmm....

Vala og Birkir í jólaboði, bara sæt.

Við frænkur eldhressar

Ella sys og Begga frænka voru líka kátar

Svona er jólalegt hjá mér :) Gleðileg jól til ykkar allra, vona að þið njótið þeirra vel og fallega, í faðmi ástvina og mackintosh.

 

Jólakyss og áramótaknús,

ykkar Guðný

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 16:39:29 / Guðný

Léleg!

Já léleg... en hér er ég og ég ætla að segja ykkur eitthvað!

Það er búið að vera svo margt í gangi síðasta mánuðinn, alltaf eitthvað að gerast hverja einustu helgi en ég nenni ekki að segja frá því svosem, en það sem tekur allan minn tíma þessa dagana er að klára loka verkefnið okkar, gengur annars vel sko, en samt frekar hægt... Við Íris erum með mjög svipaðan hönnunar smekk, en svo er það hún Charra okkar, Hollenska valkyrjan, hennar smekkur er algjörlega andstæðan við okkar, svo mikill tími fer í að skeggræða hlutina fram og til baka og finna einhvern milliveg... En það skal hafast fyrir föstudag. EN tíminn flýgur frá mér eins og óð fluga (ætli það sé góð fluga?), ég á eftir að kaupa jólagjafir, afmælisgjöf handa heittelskuðum, jólaföt, klippingu því ég hata á mér hárið og plokk og lit því ég er eins og búsk maður til augnanna. OG svo eigum við eftir að fara á Jul i Tivoli og hygge með jólaskrauti og jólabakstri OG ég hef 10 daga til að gera þetta allt... Time Managment, ekki mitt besta....

Það kom að því að ég hrindi niður stigann hérna! pomms pomms á rassinn, var að brussast niður með ryksuguna í ullarsokkum og fæturnir runnu undan mér. Verð í kraga fram yfir áramót! Nei ekki alveg, en marbletturinn á rassinum á mér er svona 12 tommur og í laginu eins og Afríka. Svo fékk ég marblett á hægri upphandlegg og vinstra hné, skil ekki alveg hvernig mér tókst það.

Ég gerði heiðarlega tilraun til að fara og kaupa jólagjafir áðan en kom ekki heim með neitt nema stress, fattaði ekki alveg að laugardagur svona rétt fyrir jól væri svona hectic. Jú ég keypti pakka fyrir secret santa í jóla stelpu kjóla boðinu sem ég er að fara í núna á eftir, og einn fyndin kjól á 99 dkk... Well done... Gengur betur næst!

 Það eru nokkrar nýjar myndir frá MÚM tónleikum, afmæli hjá Thomas, innflutningsparty og kockteila sushi kvöldi hérna http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=18277868&uid=4499849

God jul! Kv. Guðný

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 16:02:26 / Guðný

Afmæli og fleira

Halló

Núna er ég orðin 22 ára, það er merkilegt því það eru tveir eins. Og gaman einmitt því að Marín litla sys er 11 ára í dag. Það eru líka tveir eins, merkisafmæli bæði tvö :)

Margt og mikið búið að gerast held ég, afmælishelgin mín var ægilega hugguleg, maðurinn minn eldaði handa mér steik og þreif allt og var algjör draumur og svo bauð ég nokkrum vel völdum í kaffi og kökur og heppnaðist bara vel. Síðustu helgi var J-dag, þá kemur tuborg með Jólabjórinn, Julebryg, kíkti aðeins og það og svo fórum við líka í mararboð til Birkis, takk fyrir matinn :) og ætluðum svo að finna einhvern stað til að horfa á bardagann, en fundum ekkert og löbbuðum og löbbuðum allt kvöldið.

Svo er búið að vera mikið að gera í skólanum, vorum einn daginn 12 tíma í skólanum að reyna að klára verkefni sem við kynntum í gær fyrir framan kínverskan gestakennara, fengum góða dóma sem var mjög skemmtilegt. Til að halda upp á þetta fórum við Íris út að borða í gær, smakkaði sushi í fyrsta skipti, rosa gaman, og svo hittum við Bigga og Daða, sem er einmitt í heimsókn hjá okkur, og við fórum á kokteil bar og höfðum það huggulegt. Takk fyrir kvöldið Íris mín :) myndir koma seinna... Svo í kvöld er ég að fara í afmæli.. En það besta er að ég er í fríi um helgina, amen og halleluja! Hvað er á döfinni, það er Andrea næstu helgi og svo verður Snævar líka í bænum, svo við verðum nú að hittast og drekka einn MA öl saman :) Svo verður julefrokost með vinnunni í lok mánaðar, dansk julefrokost, sild og flæskesteg. spennó.

Og já, jólaóskalistar mega berast núna bráðlega, ég ætla að reyna að vera snemma í þessu :)

Slútta Þessu með nokkrum myndum eins og er orðin venjan, luv, Guðný

Birthdaygirl

Bakkelsið

Birkir mættur

og Íris sæta

Selma krútt :)

Geiri og Ásta next door nágrannar okkar

Lilja og Siggi

Og Mr. and Mrs. Birthdaygirl

Julebryg stemmning

Boðskapur: Ekki staðna í sama farinu, þú gætir gróið fast... :)

Haust þema, það er svo flott og haustlegt hjá skólanum mínum, tók smá myndaseríu

Finito....


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 23:07:10 / Guðný

Kalt í Kóngsins Köben

Ég er alveg hissa hvað tíminn líður hratt, það fara að koma jól! Síðustu viku var ég í fríi, efterårsferie, og það leið án þess að nokkur einasti hlutur kæmist í verk. Eða jú ég fékk smá kvefpest og svo fórum ég og minn elskulegi á Halloween í Tívolí. En núna er skólinn byrjaður aftur og annað verkefni komið í gang, er í hóp með Írisi og tveimur hollenskum stelpum, lýst mjög vel á þetta allt saman.


Hvað er að gerast með kuldann hérna í DK, nýstir inn að hjarta, og það hjálpar ekki til að það hefur verið heitavatnslaust undanfarið í þessum skítakofa. Og þá er ég að meina á öllu kollegíinu, köld sturta handa öllum takk.


En mál málanna, hver ætlar að mæta í afmæliskaffi hjá yours truly á sunnudaginn? Það verður kaffi og meððí, ekkert djamm og djús hjá svona gömlu fólki. Ég fékk pakka í síðustu viku og ég bara gat ekki hamið mig og reif hann upp med det samme, ástarþakkir Vala mín! :)

EN já, vaka er kennd er við hrekki er á næsta leyti, og hérna er mitt framlag

Í tivolí

fínt tré i tivoli

Posing with the pumpkin

Flott hringekja

 

See you later pumpkins!


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 16:02:23 / Guðný

Úps aftur í mánaðarfríi!

Hello! Vá þetta er farið að ganga eitthvað illa hjá mér, er alltof löt í þessu.... En já, það er búinn rúmlega mánuður af skólanum, búin að skila af mér tveimur verkefnum, ein heimasíða sem varð heimsins ljótasta, og svo einn tölvuleik sem ég var að skila af mér í dag og hann er bara nokkuð sætur, kannski get ég sett hann hérna einhverntíman.

Hvað er búið að gerast síðan síðast, Andrean gladdi mig með komu sinni, og það var æði, ég fékk eins árs skammt af slúðri og sögum í æð á svona tveimur tímum :) Við fórum að versla og út að borða og leituðum okkur svo desperat að mojito á miðvikudagskvöldi :)

Við tókum gott djamm með nágrönnum okkar, það var snilldin eina og þvílíka magnið sem var drukkið af bjór jesús minn....

Biggi fór í skólaferðalag til Berlínar í 5 daga og skemmti sér vel, kom heim íklæddur rauðum second hand tennis galla og færandi hendi með geggjaðan vasa handa mér. Við áttum svo 6 ára afmæli, time sure flies! Hugsa sér, það eru mörg ár! Við vorum einmitt að tala um að ef við hefðum orðið ólétt á fyrsta ári, ættum við barn sem væri að byrja í skóla! Það er frekar fyndin tilhugsun. Anyways, við fórum ut að borða og það var gott. Hvað meira, núna í næstu viku er ég í vetrarfríi í heila viku, vinn sjálfsagt aðeins þá og svo bara slappen afsen. Jú og svo aðal málið, ég kem heim 18. des og verð þangað til 21. janúar takk fyrir takk! Get ekki beðið, jólin eru æði.

Jæja nú er bloggviskubitið farið svo ég get hætt og heyri í ykkur eftir mánuð! :) hehe, reyni að vera duglegri... Og núna smá myndir :D

Drean alltaf jafn sæt

Loksins Mojito

Geiri nágranni, hann var hress eftir kvöldið ;)

Ásta skvís

.... og þessi fer á næsta jólakort.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 19:01:01 / Guðný

Back to School

Ég hef góða afsökun fyrir þessu bloggleysi, er búin að vera svo upptekin þessar síðustu vikur! Ég er á annarri viku í skólanum núna og þetta leggst mjög vel í mig, svo er ég búin að vera að vinna nánast alla daga með skólanum, var farin að ganga um eins og zombie, enda var ég í fríi frá vinnu í dag, kom heim eftir skóla og steinsofnaði í 3 tíma. Þetta fer að róast núna samt... En já, halló Multimedia Design, þetta er mjög gaman, er í skemmtilegum bekk með fólki allstaðar að, Ástralíu, Víetnam, Hollandi, Spáni, Tékklandi, Póllandi og já, Íslandi, en við erum tvær í bekknum. Fyrsta daginn vorum við báðar of seinar, týpiskir íslendingar :)

Við erum að vinna að heimasíðu núna, svo erum við búin að læra smá á photoshop og html og allskonar gaman. Skólinn er lengst í burtu, tekur mig svona tæpan klukkutíma að komast þangað, en maður er næstum kominn út í "sveit", það eru hross á beit við hliðina á skólanum og aðeins ferskara loft en inní kaupmannahöfn, voðalega huggulegt.

Hvað er á döfinni, Andrean eina og sanna ætlar að heimsækja mig eftir hva, viku? Það fer að styttast :) Svo er bara skóli hvern dag, vinna smá og svo veit ég ekki meir, engin frekar plön... Kannski London eins og eina helgi með mínum heittelskaða. Talandi um hann, þá ætla ég að gá hvort hann muni eftir mér, svo langt síðan ég hef verið heima :)

Enda þetta á nokkrum myndum,. ciao tutti!

Vala og ég í hringekju :D

Með Kirkjuholtsfamily fyrir utan Tivoli

Ég og Thomas í party hérna á Kollegíinu

Fórum með Signu og Reyni á Bakken og hérna erum við í 5-víddar bíói:)

Ég og Íris bekkjarsys í Velkomst fest í skólanum

aaaw :) Love you beib

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 07:21:07 / Guðný

Hæhæ!

Jamm og jei, bara mánuður síðan ég bloggaði síðast! Hvað hefur gerst síðan þá?

  • Vala mín og Birkir og Benni, Kristín og Siggi voru hérna í Danmörku og það var æðislegt að sjá þau, nú vonar maður bara að dk hafi heillað...?
  • Signa mágkona og Reynir hennar eru hjá okkur núna og við erum búin að fara á Bakken og ýmislegt gaman :) svo fara þau til Svíþjóðar á morgun.
  • Við Biggi, ásamt Sigga og Lilju, héldum þrusuparty á föstudaginn var, fullt af músík og fullt af bjór og bara stuð.
  • Ég tók upp á því að hjóla í vinnuna, það eru ca 12 km hvern dag, fæ ægileg hjólalæri af þessu.
  • Biggi minn er byrjaður í skóla, er að mála og teikna alla daga, alsæll.
  • Ég er svo að byrja í skóla eftir 2 vikur, fer í multimediadesign&communication, ég vona bara að það verði æðislegt, ég hlakka allavega til! Verð líka að vinna aðeins með.
  • Ma og Pa fóru til Finnlands um daginn, litla sys er að byrja í ML, minnsta sys og bróðir að fara í 6. og 7. bekk og stóra sys að fara í master í lyfjafræði.
  • Ég sakna Íslands, sérstaklega Laugaráss og Akureyrar. Það verður víst að bíða fram til jóla..

Myndir næste gang!

kv. Guðný


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 07:53:21 / Guðný

19. júlí

Veiii fyrstu strandferðir sumarsins voru farnar núna síðustu daga, og uppskar ég enga brúnku en mörg mörg moskitobit! Loksins er sólin komin í DK og eins gott hún haldist eitthvað aðeins, annars hefði maður bara átt að vera í sólinni á íslandi.

Annars hefur ekki mikið drifið á daga okkar síðan á Hróarskeldu, Heiða Hrönn frænka hans Bigga og Brynjar gistu hjá okkur nokkra daga, takk fyrir komuna sæta par! Við Biggi fórum á Harry Potter um daginn, hún var þrælfín, og svo fórum við í grill-picknick með Thomasi um daginn og lentum í miðju löggu-drama þar sem eingverjir gaurar höfðu tjaldað á ólöglegum stað og fyllt tjaldið með þýfi, skynsamlegir! Svo slapp einn gaurinn og löggurnar á eftir honumog við sátum bara í miðjunni á þessu með pulsur og kartöflusalat. Ekki danskar pulsur þó, SS-pYlsur sem elsku tengdó sendu okkur! Fengum fulla ferðatösku af íslensku góðgæti, pulsur, hangikjöt, flatkökur, nammi, kex, kokopuffs NAMM og fleira og fleira. Ég fór með ópal í vinnuna og leyfði vinnufelögunum að smakka, en þeir voru svo miklar kellingar að þeir höndluðu ekki íslenskan saltlakkrís "er þér eitthvað illa við okkur?" pff... Talandi um vinnuna, þá kveiknaði í tölvunni þar fyrir ca 2 vikum, og það er ekkert verið að redda málunum hér og nú, við erum búin að handskrifa allt og reikna allt út með vasareikni í 2 vikur! Ægilega fagmannlegt, á alþjóðlegum flugvelli að handskrifa kvittanir og reikna út taxfree, gjaldmiðla og allt í höndunum.. Svona myndi ALDREI viðgangast á íslandi, en í danmörku, hver er að flýta sér??

En hvert fór samt sumarið? Júlí að verða búinn? Ég bara skil þetta ekki, aldrei hefur sumarið farið svona mikið framhjá mér áður... Ohh mig langar svo í sumarfrí...

Auf Wiedersehen, eins og Heidi Klum segir

-Guðný


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 16:00:30 / Guðný

Roskilde 2007

Þá er blautasta Hróarskelduhátíð frá upphafi lokið! Jesús minn öll þessi drulla... Ég hef aldrei verið jafn fegin að koma heim, og ég verð að segja að ég hef engan áhuga á að fara aftur! En núna hef ég allavega upplifað þetta, séð nokkra fína tónleika og svona. En það verður eitthvað sólarland í staðinn á næsta ári.

Held ég sýni ykkur bara myndir, þær segja meira.

Þessi var hress, það hefur verið gaman að rífa límbandið af!

Biggi og Siggi, mestu rednecks á svæðinu.

farið að flæða að tjaldinu okkar, við urðum að grafa skurð allt í kring til að redda þessu.

Þarna var allt á floti!

ég útí polli, og ruslabíllinn pikkfastur.

Í grenjandi rigningu á Killers, Lilja, Svabbi og Linda

Orange scene

Ég að virða fyrir mér sóðaskapinn í fortjaldinu okkar

Allt í klessu á sunudagsmorgninum

Ruslið hjá tjöldunum okkar....

Vá það var yndislegt að koma heim! Þvílík sæla...

Danskir veðurfræðingar lugu því í vor að það yrði slegið hitamet í sumar, en neibb, aldrei rignt svona mikið! Týpiskt, bara því að ég er hérna og ætlaði að hafa það næs í sólinni....

Blööö,en hvað er að frétta?

 Kv. Guðný :)

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 21:15:40 / Guðný

Ísland og brúðkaup

Hallóhalló!

Ég er semsagt á lífi, in case someone is wondering. Ég er bara búin að vinna eins og rakki fyrir utan eina helgi á Íslandi sem var æðisleg! Ég fór í brúðkaup og náði smá hygge með fjölskyldunni líka, alltof stutt að vera bara eina helgi, var æðislegt að anda að sér ferska loftinu heima, stóð úti á hlaði í korter og andaði að mér góðu gróðurlyktinni og svaf dásamlega í kyrrðinni, engar sírenur eða bílaumferð, dásamlegt!

Brúðkaupið hjá Stínu frænku og Jóni Garðari var bíómyndabrúðkaup af bestu gerð, dramatík en endaði þó vel, allt er gott sem endar vel og fall er fararheill :) 

Svo kom ég tilbaka frá Íslandi og beint á kvöldvakt og hef verið að vinna síðan, er í fríi í dag og svaf til 12, fórum svo í göngutúr niður í bæ og komum heim og sofnuðum! Ein alveg uppgefin gjörsamlega, talandi um vinnuhund, svo hirðir danski skatturinn allt af mér... EN það þýðir ekki að velta sér uppúr því, því að ROSKILDE FESTIVAL er á næstu grösum og miðarnir eru komnir í hús, ég hlakka svo til!

Jæja nokkrar myndir og svo er meira til hliðar undir 'Júní'

Linda og Lilý mættu frá Sverige og dvödu í nokkra daga, takk stelpur mínar :)

Ég og Skúli bró í kirkjunni

Steinar og Elín sys

Herdís og Sævar sætu

 Sætar frænkur

Sætu brúðhjónin :)

og að lokum, tveggja ára útskirftarparty 4.G sem ég missti af

Saknaðarkveðjur, ég verð með næst, annað kemur ekki til greina!

 

Luv, Guðný


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 18:19:06 / Guðný

Hvítasunnuhelgin

Þessir síðustu dagar voru æðislegir! Ég hef sjaldan skemmt mér svona vel, vá hvað það var gaman! Þökk sé frábærum gestum, Vala og Birkir heiðruðu okkur með nærveru sinni yfir hvítasunnuna og við gerðum margt og mikið! Sightseeing, versla, tivolí, borða mikið, bíó, leigðum bíl og skelltum okkur til Malmö, sem er alveg the place to be.

Birkir, Vala og Biggi. Við löbbuðum útum alla Kaupmannahöfn

Bara sæt :)

Við frænkurnar í Tivolí að fara í Kolkrabbann sem við vorum ekki alveg að skilja hvernig virkaði hahah

Rent-A-Mini, glæsikerran sem við leigðum! Þvílíka dollan, ég er alveg hætt við að langa í svona bíl. Fyrir utan hversu hastur og ömurlegur hann var í akstri, þá ákvað rúðan bílstjóramegin að sitja föst niðri þegar við vorum á leiðinni heim frá Malmö, sérstaklega æðislegt þegar við fórum yfir Öresundsbrúnna í skítakulda og þegar það byrjaði að rigna, Biggi var orðinn rennandi á vinstri hliðinni þegar við komum heim. Drasl.

En það var fallegt í Malmö eins og sjá má.

The turning torso, geðveikur arkitektur í Malmö, og sæta parið :)

Ég, Biggi og Birkir að gæða okkur á samlokum í Malmö.

 

OOOHHH nenniði að koma aftur?? Eða já auðvitað, þið flytjið náttúrulega hingað þegar við kaupum okkur bóndabæ á Lollandi! Jess ég er strax farin að hlakka til. Eða var það kannski Malmö sem við ætluðum að flytja til? Í lúxusinn á Vastra Hamnen :)

TAKK fyrir æðislega daga!

Kv. Guðný

Og ekki má gleyma þessum gaur


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 15:23:29 / Guðný

17. maí 2007

Hefði átt að dásama veðrið aðeins meira, búið að vera rigning síðan síðast. Muna það næst. En já, það sem er helst í fréttum er ekkert merkilegt, er að vinna og vinna, var sölumaður síðustu viku sjibbí, seldi fyrir 830.000 ISK, væri gaman ef ég fengi eitthvað af þessu sjálf haaa, á ekki baun í búri. Fór á vinnudjamm síðustu helgi, það var alveg fínt, maður þekkir nú ekkert marga þarna í fríhöfninni ennþá.

Ég hitti sæta parið Ingu Hrund og Guðna Þór bæði á leiðinni til og frá kaupmannahöfn, hafði ekki séð þau í næstum 2 ár, sem er alveg skammarlegt. Ægilega sem ég sakna 4.G... Svo hitti ég Herdísi sætu sys í nokkra tíma, hún var í skólaferðalagi og vá það var svo gaman að hitta hana! Svo eftir sex daga koma Vala og Birkir! Vá það verður svo gaman, ég get ekki beðið! Svo svo svo er ég að fara að koma til Íslands í brúðkaup frá 8. til 11. júní, ég hlakka svo til! Skömm að segja frá því en ég hef aldrei farið í brúðkaup. Svo ég er ægilega spennt, og líka að koma heim og sjá fjölskylduna, hef ekki séð þau síðan um jólin.

Svo er vinnan bara lífið, er að vinna 9 daga straight, sem er ágætt svosem..Mest kvöldvaktir, greyið Biggi borðar kvöldmatinn einn þessa dagana. Nema í dag allavega. Á morgun á ég svo að fara á 8 klst námskeið í sölumennsku, og mér skilst að þetta snúist um einhverja satans hlutverkaleiki, einn leikur kúnnann og hinn sölumanninn, ég hata svoleiðis kjaftæði. En það á víst að vera góður hádegismatur. Og ég verð á launum á meðan. Úff ætla bara að ljúka þessu af.

Við hjúin erum alveg dottin í Heroes, þvílík snilld, hef ekki tíma í að skrifa meira :)

Ciao,

Guðný,


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 16:15:16 / Guðný

Tropical CPH

Manni líður ekki eins og maður sé í Skandinavíu onei, þvílíka blíðan sem er búin að vera! Í dag var ég í fríi og pantaði áframhaldandi sól, Lilja kom og veitti mér félagsskap í sólbaði í 30 gráðunum á pallinum okkar. Þessi pallur er svo mikil dýrð, eiginlega of mikill hiti. Við sendum strákana útí bakarí og fórum svo öll í hjólatúr niður á strönd, hjóluðum eftir allri ströndinni og þar voru hugrökk börn að leika sér í köldum sjónum. Svo nú erum við bara dösuð heima, ég ELSKA svona daga :)

Gærdagurinn var líka góður, var boðið í brúðkaup og frétti af tveimur óléttum, til hamingju frænka, nágranni og móðursystir. Síðustu helgi var Jóhanna Reykjalín stödd í Kaupmannahöfn og við skelltum okkur á djammið og gjörsamlega dönsuðum af okkur rassinn. Svo fórum við í bíó saman. Eða nei, hún fór í bíó og ég var fyrir utan að leita að henni! Góð saga... Við ætluðum að hittast í andyrinu á bíóinu og hún var ekki komin svo ég býð, og býð, og kaupi miða handa henni líka svo við gætum bara farið beint inn þegar hún kæmi. Og ég býð. Og hálftíma síðar hringi ég í stelpurnar sem hún var með og þær sö-gðu að hún væri löngu farin í bíó og væri ekki með síma. Svo ég fer að panikka, og fer á alla staði sem gætu hljómað eins og nafnið á bíóinu Palads. Fer á Plaza, Scala, Palace, hélt hún hefði villst. Þarna hleyp ég um miðbæinn í skítakulda og sé fyrir mér að henni hafi verið rænt eða eitthvað verra. Svo að lokum fer ég bara í bíóið og sé síðustu 5 mínúturnar að myndinni. Ljósið kviknar og fyrsta sem ég sé er Hanna! Hún hafði farið inn rétt áður en ég kom og sat alla myndina og hélt ég sæti bara á öðrum stað. Semsagt, ég keypti tvo miða fyrir 5 mínútur. Ég missti andlitið, fegin að hún var á lífi n langaði samt pínu að slá hana :) Hahahaha, algjörar óþarfa áhyggjur. En svona er þetta og svona væri allt lífið ef að gsm símar væru ekki til. Æðislega gaman að sjá stelpuna, hafði ekki séð hana í næstum ár!

Svo í maí mun ég sjá Ingu og Guðna sem ég hef varla séð í 2 ár, Herdísi sys, Völu og Birki og ég get ekki beðið því það verður svo gaman hjá okkur!!! Í júní á ég von á Lindu og Lilý svíadrottningum og svo hafa engir fleiri boðað komu sína að ég held :)

Næstu helgi er ég að fara í vinnustaðaparty, það er árshátíð Copenhagen Airport og það verður svo víst alveg svaka stórt dæmi. Jeg glæder mig.

Sólskinsmyndir for your pleasure verða næst á dagskrá, en þetta er gott í bili!

Love, Guðný með nýjar freknur


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21