|
|
30.03.2006 18:52:15 / Guðný
Núna er nýlokin kennslustund hjá okkur og ég sit hérna ein í
tölvunni, nema hvað... Þetta var fínasti tími, Hamid frá Algeríu
gaf okkur dagbók frá Algeríska sendiráðinu, eigulegur gripur. Og ég
gæti bara jafnvel verið komin með plan fyrir laugardaginn! Ha? Plan
fyrir helgi? JÁ það er nebbla þannig... Victoria er frá
Bandaríkjunum og er kennari, hún er að kenna við alþjóðlegan skóla
hérna í Róm og á laugardaginn verður ferð með samstarfsfólki hennar
í eitthvað sjávarþorp (náði ekki alllveg, hún sagði þetta á
ítölsku) og mér er boðið með Já eða kennarinn stakk upp á því og
hún hefði aldrei sagt nei... þannig kannski er ég boðflenna en
whaeva... Það er guide á ensku og það er bara gaman. Fæ meiri
details á morgun.
Ég er búin að vera alveg óð síðustu daga að reyna að finna
gistiheimili fyrir okkur Bigga þegar hann kemur (ef við verðum
heima hjá þeim þá verður ekki mínútu friður) og það er ekkert að
ganga of vel litli bærinn hérna fyrir ofan (Castel
Gandolfo) hefur bara upp á að bjóða hótel, og fyrir fátæka
elskendur er það of mikið. En vá hvað fólkið þarna er hjálpsamt! Ég
bara á ekki orð.. Ég spurði einn gamlan mann hvar ein gata væri og
hann bara settist í bílinn sinn og sagði mér að elta sig og svo
keyrði hann og keyrði lengst lengst þangað til á áfangastað var
komið. Það gistiheimili var fullbókað. Svo í gær gekk ég um bæinn
og í allar búðir og spurði fólk á förnum vegi og ein hringdi fyrir
mig og gekk með mér og bankaði hjá nunnum sem hún hélt að væru að
leigja herbergi og svo teiknaði hún handa mér kort og bara name it!
En ég hafði ekki erindi sem erfiði (vá háfleyg) og ekkert hef ég
fundið enn innan price range... Arrr ég VIL gista annarstaðar.
Annars étur drengurinn okkur með húð og hári, hann er nú þegar
búinn að ákveða hvað tölvuleiki hann ætlar að sýna Bigga! Mama
mia.
Það er komið SUMAR! Allavega fyrir mig, ég og USA stelpan vorum
á stuttermabolum áðan en kennarinn og Hamid fannst frekar kalt
bara.. Anyway, það er svo ljúft að rölta um litla bæinn, hann er
eins típískur ítalskur lítill bær og hægt er, í sólinni og hitanum
eða ganga kringum vatnið... Nokkrar freknur jafnvel... Heitt og
sveitt að sitja í bílnum úff...
Síðustu daga hefur konan átt sínar stundir, sendandi mig með
skilaboð til kennara (æ alveg fáránleg) og ein bók var týnd,
sem ég hef aldrei séð, og það var mitt hirðuleysi, og bréf til
foreldra frá skólanum, ég á muna eftir því að hann sýni mömmu sinni
þau. Vá gæti þér þótt aðeins leiðinlegra að vera móðir? Í alvöru...
henni finnst eins og hún sé eina útivinnandi móðir jarðarinnar. OHH
ok ekki skemma fyrir mér sólardaginn.
Næsta fimmtudag ætlum við að fara með kennaranum á bar og fá
okkur ítalskan bjór og svo einhverntíman verður farið í field trip
með öllum skólanum. Jei!
»
27.03.2006 21:18:38 / Guðný
Jæja það er svosem ekkert
merkilegt búið að gerast undanfarna daga... búðarferð dauðans
var farin á föstudagskvöldið. Það var ekki ætur biti í kotinu
svo ég, konan og strákurinn fórum í einhvern súpermarkað lengst
lengst í burtu. Ég náði í kerru og var að taka rusl úr henni
þegar ég skar mig á einhverju (halló lifrarbólga C) í lófanum og
það fossblæddi svona, sullaði blóði á kerruna og jakkann minn og
út um allt. Ég fékk mér bara klósettpapír og þrýsti á sárið, en
satans kerran sem mér blæddi fyrir var svona gölluð að hjólin
snerust ekki lengur. Svo ég var einhent að drösla þessari kerru
um, eltandi allar sérþarfir konunnar og frekju stráksins. Hann
vildi fara heim og þá átti bara að fara heim, hefði getað
sparkað í hann með kúrekastígvélunum, togandi í kerruna eins og
versta smábarn vááá ég var svo ógeðslega pirruð. Ok eftir tvo
tíma og tvær fullar körfur þá fórum við að borga. NEI kortinu
hennar var hafnað, og þá tók við annar klukkutími að reyna að
finna hraðbanka og eitthvað en ekkert virkaði. Ég var með
“vasapeninginn” minn, sem nægði engan veginn fyirr þessu öllu,
svo við þurftum að skila meira en helmingnum af öllu saman.
Enduðum á því að koma með 4 poka heim, af tveim heilum körfum.
Við fengum okkur bjór þegar við komum heim...
Eyddi helginni meira og minna í Róm,
á laugardaginn hitti ég tvær stelpur frá USA og spjallaði við þær,
en nei, þær voru bara tvo daga í Róm L
Skömmu eftir að
ég kvaddi stelpurnar kemur að mér maður með skyrtuna hneppta
niður á bringu og í leddara, ca. 45 ára, var ekkert að
tvínóna við hlutina: Hæ, hvaðan ertu, eru allar ísl. stelpur
með svona falleg augu, mér finnst þú æðisleg, viltu koma og
skoða Colosseum með mér? Takk en neeeei takk (ég er kannski
einmana, en ef þetta er allur félagskapurinn sem mér býðst
þá...)
Svo í gær fór ég og skoðaði ítalska
þingið, voðalega virðulegt. Og tók myndir og sat í sólinni (er smá
brunnin..). Og skoðaði búðir... og var svo boðið í drykk af manni á
gulum sportbíl: Kommon, einn drykk bara! Nei þarf að ná lest!
Alltaf góð afsökun.
Í dag fór ég í barnaafmæli sem var
haldið í einhvers konar leik landi, hoppukastalar og trampolin og
klifurgrindur, börnin urðu alveg snar óð! Ég sat á spjalli við
mömmurnar og borðaði pizzu og drakk kók. Það var alveg ágætt
Jmikið vildi ég að ég væri að
passa stelpu.. eina af þessum litlu prinsessum... til dæmis
núna er vinur stráksins að gista hjá honum og ég átti að lesa
fyrir þá sögu fyrir svefninn, þeir völdu sögu um jesús og
jólin og sneru öllu upp í piss og kúk og klósett. “Og
jesúsbarnið svaf í jötu...” “HAHAHH og svo sturtaðist það
niður klósettið”. 
NÚ þetta er það helsta, bara daglegt
líf og ekkert merkilegt, og einhver verður að fá að heyra þetta. Og
já, ég er núna tveimur tímum á undan íslandi.. waayyy ahead of ya

»
26.03.2006 18:47:46 / Guðný

Italia-6
og lika

Italia-7
Er a netkaffi og nenni ekki ad skrifa faerslu a utlenskt
lyklabord...
»
23.03.2006 20:00:57 / Guðný
Það er fokið í flest skjól... Bandaríska "stelpan" sem átti að
vera á sama aldri og ég, en bara alls engin stelpa og alveg kúkú in
the coconut. Hún er svona að nálgast þrítugt og er kennari og afar
afar sérstök... Eins og einhver "Stundin okkar" karakter. Það er
gaman að henni í tímum því hún er svo spes, það er reyndar plús...
Það er frítt þráðlaust net hérna í kennslustofunni og ég er að
reyna að nýta mér það. Í tímanum í dag voru bara ég, Veronica (USA)
og Hamid, sem vinnur hérna fyrir Algeríska (hvar er Algería?)
sendiráðið. Ishi var vant við látinn, held hann sé á Dionne Warvick
tónleikum. Allavega. Titillinn? Er að koma að því...
Var að bíða eftir lestinni til Rómar þegar kemur að mér maður:
"Renata?" Ha? "Nei þú líkist Renötu vinkonu minni frá Rússlandi"
HAHAHAHAHA. En hann stoppaði ekki þar (eða kannski á hann enga
vinkonu í Rússlandi og fannst þetta bara góð pick-up lína)
Heldur fer að spyrja mig hvaðan ég sé og hvað ég heiti og hvað ég
sé gömul. Og svo: Á ég ekki að gefa þér símanúmerið mitt og við
getum fengið okkur kaffi saman? Ertekkkkaðgrínast (hann var b.t.w.
48 ára og tannlaus! Svona eins og maður sér fyrir sér ítalskan
vínbónda), nei takk segi ég kurteislega. "Afhverju ekki? ég er laus
og liðugur og þú ert svona falleg stúlka!" No grazie... og reyni að
koma orðum að því að ég hafi ekki áhuga.."Afhverju ekki? afhverju?"
Ég þarf að koma mér upp meiri orðaforða fyrir svona aðstæður, ég
verð til dæmis að kunna að segja: Ég á kærasta! eða jafnvel: Ég er
lesbía, ef að fer í hart... Og svo kom lestin og bjargaði mér. En
hvað ætli hann hafi verið að hugsa: Best að húkka upp tvítugu
stelpuna þarna? Halló, Sergio, þú gamli maður... En hann var ekkert
ókurteis, sagði bara að Ísland væri fallegt land og bauð mér vel að
lifa.
Hvað get ég sagt meira... Ég og konan í hreinsuninni erum orðnar
kunningjar, hún hefur fengið að fylgjast með ítölskukunnáttunni
þróast hjá mér frá fyrsta degi. Antonette, indæl kona. Ekki að við
höfum getað talað mikið saman 
Ekki nema ca 3 vikur þangað til Biggi kemur Vildi samt frekar
bara vera í Köben, alltaf einhverjir tónleikar og djamm.. ekki er
djamm hér... búhú....
Jæja þarf að hipja mig
»
21.03.2006 13:29:10 / Guðný
Hmm það sjást engar myndir lengur í myndadálknum mínum, ætla að
reyna að redda því bráðum svo ég geti loksins sett inn myndir frá
Feneyjum, Ölpunum og það nýjasta frá Róm. [innskot: komnar myndir
frá Feneyjum, Ítalía
5
 ]
Á laugardaginn gerði ég ekkert merkilegt, gekk í kringum vatnið
og hjálpaði konunni að baka (m.a. brauð þar sem bragðefnið var
matarsódi. Þvílíkt óæti, og það vorum við sammála um). Snemma á
sunnudeginum tók ég svo lest til Rómar og gekk borgina þvera og
endilanga og allar mjóu göturnar og tók fullt fullt af myndum.
Keypti mér peysu og geisladisk. Og lenti í alveg fáránlegu, ég var
bara að labba og þá stoppaði strákur hjá mér, kynnti sig og bauð
mér með sér á diskótek. Já nei takk ég er bara að versla og svona..
og hann fór að tala um eitthvað almannatengsla fyrirtæki og vildi
sýna mér eitthvað torg, strauk á mér hárið og tók utan um axlirnar
á mér! VÓ hvað þykistu vera að gera?? OK bless, og hann var horfinn
eins skyndilega og hann birtist. Þetta allt gerðist á svona 2
mínútum og ég bara stóð og hvaaa..?? Frekjan og dóninn.. Falin
myndavél eða eitthvað.
Ég var að læra heima áðan, svaka stuð. Nema til að vita hvað ég
á að gera þarf ég að þýða leiðbeiningarnar fyrst.. sé til hvort það
sé eitthvað rétt í þessu hjá mér. Námskeið í kvöld, það er
jollygood...
Fór í morgun upp í litla bæinn hérna fyrir ofan að sækja fötin
úr hreinsun. Fór fótgangandi því veðrið er fínt og það sjást ekki
margar ljóshærðar manneskjur þar og jesus minn,
truckdriverar jafnt sem jakkafatamenn á benz, allir
flautandi á mann, hvað haldiði að gerist við það, að ég hlaupi á
eftir bílnum og grátbiðji um að fá að verða ástkona ykkar? Æ þetta
er orðið frekar þreytt. Tippakallar allt saman.
Jæja, soccer mamman er farin að sækja drenginn í skólann.
Ciao!
»
18.03.2006 13:49:23 / Guðný
Síðasta fimmtudag fór ég á ítölsku námskeið! Yndislegt að komast
úr húsi og fara að læra eitthvað! Það mættu bara ég og Japaninn
Ishi í þennan tíma, en þau eru samt vanalega fleiri... Allavega,
við Ishi fengum þá bara persónilegri kennslu, kennarinn er indæl
kona og gaf mér ljósrit úr þeim tímum sem ég missti af og sagði mér
að það væri vanalega ein stelpa frá Bandaríkjunum í þessum tímum,
og hún er á sama aldri og ég 
Þegar ég var að bíða eftir lestinni til að fara til Róm þá
kynntist ég strák sem á heima þarna nálægt, gaman að geta spjallað
við einhvern í lestinni (vanalega er það bara sudoku). Þegar við
kvöddumst í Róm þá lét hann mig hafa heimasíma og gemsa og sagði
mér að hringja ef mér leiddist og langaði í göngutúr meðfram
vatninu... jahhh.. smá spark undir fótinn? Afhverju get ég ekki
kynnst einhverri stelpu, vil ekki valda misskilningi meðal ítalskra
pilta.
Ég ætla semsagt að halda áfram á námskeiðinu, stundum plana þau
ferðir eða hitting um helgar og það er bara frábært! Í þessum eina
tíma lærði ég meira málfræðilega séð heldur en allan þennan tíma
sem ég hef verið hér, en ég skil samt meira en ég hélt... Ég kann
að segja: Borðið er gamalt. Ís er sætur. Sólin er heit.
Jæææja.. laugardagur.. búin að vaska upp, fara með föt í
hreinsun fyrir konuna og fara í verslun. Veit satt best að segja
ekki hvernig ég á að eyða deginum...
»
15.03.2006 21:14:45 / Guðný
Það var skátafundur í gær (gæti ég
verið meiri soccer-mom) og ég var að spjalla við nokkrar
mömmurnar og ein var svo almennileg að gefa mér númer hjá einum
enskuskóla og gaf mér svo ensku útgáfuna af ítölsku gulu
síðunum. Þar fann ég heeeellling af skólum sem hafa námskeið í
boði og ég heimsótti tvo þeirra í dag í Róm. Líst mjög vel á
annan þeirra og var boðið í prufutíma annað kvöld.. nema það
stangast einmitt á við fótboltaæfingu hjá stráknum sem er
ömurlegt því að hann hefur ekki einusinni það mikinn áhuga á
fótboltanum og í hvert einasta skipti finnur hann einhverja
afsökun til að fara ekki... þetta verður að reddast, ég verð að
kynnast einhverjum svo að þau hætti að pressa á mig að eignast
vini... þau eru meira desperat en ég og það er alveg óþolandi!
Nú þessi mamma sem gaf mér bókina var sjálf au-pair og fannst
það ömurlegt.. og hún sagði við mig að ég ætti ekki að vera að
gera eitthvað sem mig langar ekki.. æég veit ekkert hvað ég
vil... ég er hálfnuð svo ég gæti allt eins klárað þetta... vorið
er svo gott sem komið og Biggi er að koma í heimsókn

Önnur mamman er að leita sér að
au-pair í tvo mánuði í sumar, júní og júlí, hún á krúttlegan
ættleiddan strák (dekraður jájá en ekki svona kokhraustur og frekur
eins og minn strákur) og býr nálægt ströndinni. Svo... ef einhver
hefur áhuga, sendið mér skilaboð!
Og svo aðal mamman (boy-scout
stjórnandinn) á pilates stúdíó og sagði að ég ætti endilega að koma
og prófa. En ætli það stangist ekki á á við fótbolta eða tennis eða
frönskutíma. Þeirri konu líkar ekkert alltof vel við strákinn
“minn” (ég er ekki hissa) og er heldur ekki sátt við konuna “mína”,
til dæmis vegna þess að hún passaði hundkvikindið meðan við vorum á
skíðum, og konan ku hafa sagt henni að hún væri mjög heimilisvön..
sem er ekki satt því hún mígur og skítur bara inni, hef aldrei séð
hana gera sín stykki utandyra. Hún varð semsagt ekkert voðalega
sátt.
SKO sjáið hvað mig vantar vini, er
komin inn í heim fótboltamömmunnar og tala bara um einhverja
foreldrafundi.
Fréttir af nýja húsinu. Fyrst var það
febrúar. Svo lok febrúar. Svo lok mars. Núna síðast kannski í
apríl. Ég held ég verði að smell the coffee og átta mig á því að ég
á aldrei eftir að fá að búa þarna. Hafa risa svalir og sér
baðherbergi. Og adsl. Neibb ekki séns.
Smá öppdeit: Ok konan ætlar að redda
fotboltaæfingunni á morgun svo ég er að fara á námskeið! Eða prufa
allavega... Vá ég hlakka til.. og kvíði fyrir líka... Vona bara að
þetta sé skemmtilegur hópur. Annars sætti ég mig við hvaða
félagsskap sem er 
Kv. Guðný
VonandiEkkiLengur-Lóner
»
13.03.2006 22:59:46 / Guðný
Erum komin aftur heim, það er mjög gott verð ég að segja!
Alparnir eru auðvitað æði og ég verð einhvern tíman að koma þangað
um sumar og hitta Heidi og geitastrák. En já, heil vika með ekkert
privacy er alveg fullmikið, og allt of mikil samvera með
fjölskyldunni. Svo já, gott að vera komin "heim".
Er brún og sælleg í framan, freknur í hámarki eftir
fjallasólina! Marblettir vikunnar eru að koma hægt og hægt í
ljós... Veit ekki hvernig ég fór að því að fá þá suma. Það þarf
einhvern hæfileika 
Umsóknin í CBS fór í póst fyrir helgi, Biggi minn reddaði því
fyrir mig... Nú þá er bara að sitja sveitt og naga á sér neglurnar
þangað til 27. júlí, en þá verða svörin send út frá skólanum. OK,
ég bíð baaaara róleg.. Nema ég verða alveg brjáluð ef ég kemst ekki
inn í það sem ég setti í fyrsta sæti.. En hvaða líkur eru að ég
verði ein af 12 útlendingum sem verða teknir inn? Oji ég nenni ekki
að hugsa um þetta.
Birgir minn Stefánsson er að koma til mín! 10. apríl! Vá ég get
ekki beðið.. er samt svo stressuð fyrir hans hönd að hann þurfi að
hitta þetta fólk.. og er líka stressuð að hann þurfi að sjá mig
keyra hérna satt best að segja væri ég frekar til í að fara í
heimsókn til Köben. Þar er sængin mín og allt gott. Bara 4
vikur.... ohh ég hlakka svo til.
Sudoku. Ég er alveg forfallin. Kaupi mér sudoku vikunnar
(reyndar tók síðasta tölublað heilan mánuð) og konan er ægilega
glöð að ég skuli kaupa mér ítalskt blað... Ég reyndi að útskýra að
ég þyrfti nú ekkert að lesa til að gera þessar þrautir en hún gat
ómögulega skilið út á hvað þetta gengur.
Þetta er voðalega sundurlaust verð að fara að sofa... já
svefn.. hvað þýðir það að dreyma hár? Eitthvað skemmtilegt er ég
viss um.
»
08.03.2006 21:33:12 / Guðný
..en ekki í þeim skilningi sem væri skemmtilegur! Í dag var
snjókoma og þá varð ég svona ægilega snjóblind að allt rann saman í
eitt og ég bara sá ekki neitt og datt og datt og datt. Í ofanálag
er ég svo marin eftir brettaskóna að það er geðveikur sársauki að
vera í þeim... Held ég verði að sleppa brettinu á morgun svo þetta
nái að jafna sig! Get bara labbað um þennan krúttlega bæ og tekið
myndir.
Nú, strákurinn er í skíðaskóla á morgana og svo þegar við komum
aftur heim þá er það í mínum verkahring að fara með hann út eða
eitthvert svona fram að kvöldmat svo hjónin geti haft það náðugt..
semsagt þessa viku sjá þau einkasoninn bara svona rétt í
matmálstímum.. stundum er eins og þeim sé alveg ofaukið að eiga
þetta eina barn! Nú þannig ég þarf að fara út að renna, búa til
snjókall, spila borðtennis, tefla og allt mögulegt í fleiri fleiri
tíma. Það getur nú samt verið ágætt að dúða sig upp og velta sér í
snjónum. Í dag var ég að ná í strákinn í skíðaskólann og hann var
spurður hver kæmi að sækja hann og þá sagði hann: hún heitir Gudny
Gullrass Magnusdottir hahahah hann hefur séð mig spjalla á msn og
gerði bara ráð fyrir að þetta væri millinafnið.. haha... er kannski
kominn tími á að breyta? Gullrass orðið þreytt?
Þrátt fyrir allan þenna quality time sem hjónin eiga þá
hnakkrífast þau sem aldrei fyrr. Að nenna þessu...
Þetta umhverfi er svona fíls læk hóm: kalt úti og ekki rakt,
heitt inni og parket á gólfum, snjór og klaki... Mér finnst það
bara frábært í Róm er "ekkertVeður" núna, smá heitt úti og
skítkalt inni. Svo eru öll húisn svo æðislega flott og klesst upp í
snarbrattar hlíðarnar... Mér finnst þetta svo jólalegt 
OK ætli ég verði ekki að fara að sofa, hef ekkert meira að
segja...
Góða nótt allir saman
»
06.03.2006 22:01:00 / Guðný
Ok, við komum hingað í alpana í gærkvöldi, erum í dalnum
Gressoney og það er bara fallegt hérna vá vá og vá ég á ekki orð.
en ég má ekki vera lengi á netinu...
- Það er erfitt að vera wannabe board-babe þegar maður dettur
aftur og aftur og aftur í diskalyftunni fyrir framan alla
- Sökum glampandi sólar er mín ansi rauð í framan núna
- Þessi fjöll eru svo kúl!
- Hótelið er kósý
- Ég fæ harðsperrur á morgun
- Hvíta úlpan mín er ekki eins hvít lengur
Kallinn sem á hótelið veit ekki einusinni hvenrig netið hérna
vikrar þannig þeta er í gengum tengingu kallsins... svo búið í
bili!
Kv.
Guðný fjallahlussa
»
02.03.2006 22:43:31 / Guðný
Í gær borðaði ég kolkrabba. Hann var fjólublár og með sogskálar,
ægilega klígjukennd tilhugsun en hann var bara góður. Og þau létu
mig smakka safann úr honum, rauður og saltur, góður við kvefi segja
þau. Ég er ekki veik, sagði ég og sneri mér útúr þessu. Ég má þó
eiga það að ég smakka allt... Eins og svínslöppina, gubb...
Í dag var ég seld í hórdóm, já eða notuð sem "gulrót". Fórum í
nýja húsið að kíkja á marmarann og það er strákur að vinna þarna og
kallinn segir við hann: ef þú ert nógu duglegur þá máttu bjóða
Guðnýju í bíó, og strákurinn roðnaði svona ægilega og svo bara já
ok, ég kann smá ensku þannig það verður allt í lagi...Þannig ég
býst bara við bíóferð á næstunni! Svo komum við heim og strákurinn
úr skólanum, og þá sögðu þau honum að ég hefði eignast aðdáanda og
hann bara: ha, hver? Ekki ætlaru að tala við hann! Já en þú átt
kærasta! Og varð ægilega afbrýðisamur, þannig Biggi minn þú
átt von á góðu þegar þú kemur 
Svo fór hann á fótboltaæfingu áðan og ég keyrði hann og var svo
of sein að ná í hann og hann fór að leita að mér og spurði
húsvörðinn hvort hann hafi séð stelpu með sítt gult hár og stór
græn augu. hahaha það er nú einhver fyndnasta lýsing sem ég hef
heyrt. Gult hár. Eins og Marín segir.
Myndir komnar, ekki frá Fenyjum reyndar, heldur eldri myndir.
Þetta verður að vera í tímaröð Ítalía-4, neðst til vinstri.
Skíðaferð er áætluð næsta sunnudag. Ég tek því með fyrirvara!
Hjónin eru eitthvað slöpp þannig ég ætla aðeins að bíða með að koma
mér í sjúbb sjúbb fílinginn.
Og í gær voru 3 kakkalakkar inni á baðinu mínu. Og þar á undan
var risa fljúgandi bjalla inni í herberginu mínu. Myndi fyrirgefa
þessar pöddur ef það væri gott veður. En nei, það var éljagangur
áðan. Ísland góða Ísland...
Búin að vera hér akkurat í 2 mánuði. 3 eftir. Þetta líður samt
hratt. Finnst ég ekki hafa verið hér svo lengi.
Ég er svo sybbin. Ætla að sofna í faðmlögum við apakrútt.
Góða nótt! Guðný með gula hárið

»
01.03.2006 12:30:53 / Guðný
Ég var að fá tvo pakka áðan! 
Annar frá mínum heittelskaða og hinn frá elsku bestustu Völu minni.
Í pakkanum frá Bigga var loðið apakrútt með lyktinni hans og um
leið og ég fann hana fór ég að skæla. Svo frá Völu fékk ég langt og
skemmtilegt bréf og fullt af nammi. Ég er fegin að ég var ein
heima, sat þarna skælandi með apa í fanginu og lesandi bréf,
hlæjandi inn á milli. En aðallega skælandi, sakna Völu minnar svo
mikið og það er alltof langt í að Biggi komi í heimsókn. Apinn
verður að vera staðgengill þangað til, er bara búin að sniffa
næstum alla lyktina úr honum. Verð að vakúm pakka honum til að
spara lyktina.
Svo er tengdó dugleg við að taka upp idol og júró og senda mér og
ma og pa ætla að senda mér páskaegg Það er gott að eiga góða að,
ég elska ykkur öll!
Guðný væmna tilfinningahrúga
»
|
|