|
|
29.01.2007 13:55:16 / Guðný
Neðst til vinstri - Janúar 2007. Myndir frá pizzakvöldi hérna á
kollegíinu, afmæli sem ég fór í um daginn og svo breytingarnar
á íbúðinni.
Skoða og kommenta takk
»
25.01.2007 17:10:29 / Guðný
Í gær var 24. jan og þá sagði einhver: Mánuður síðan jólin voru!
Bara mánuður? Mér finnst vera svona hálft ár síðan ég var að opna
pakkana á aðfangadag. Tíminn hefur bara staðið í stað síðan ég kom
hingað út aftur. Perché? Ég skil bara ekkert í þessu. Kannski
kuldinn og myrkrið og það allt saman. Allt í einu kom veturinn
hérna, með snjó og bítandi frosti sem er ömurlegt þegar maður á
ekki bíl.
Skólinn skólinn... Hann er svona 50 - 50 gagnlegur
og gagnlaus. Mjög gaman að læra ýmislegt praktískt um húð og hár en
upp á móti koma leikskóla tímar þar sem við erum að mála, klippa og
líma og læra muninn á lóðrétt og lárétt. En jájá þetta er bara
tímabundið ástand, sæki um eitthvað sniðugt fyrir næstu önn. Veit
ekki neitt hvað ég vil akkúrat núna. Er eitthvað foggy í hausnum,
þarf að fá vitrun. Stundum er það alveg á tæru en stundum overhoved
ikke. Jeg snakker så meget dansk nu at nogle gange tænker jeg også
på dansk.
En skólinn er ekki alslæmur, langt því frá! Til
dæmis núna áðan gerðum við andlitsþvott á hvor annarri með nuddi og
maska og tilheyrandi, ægilega fínt að vera pakkað inní teppi og
dekrað við mann. Stelpan sem ég meðhöndlaði sofnaði í nuddinu hjá
mér, það þykir mér hrós. Er líka aðeins búin að æfa mig á
Bigga.
Hmmm hvað meira, jú við keyptum okkur fataskáp um
daginn og ég setti hann saman takk fyrir takk, ægilega hörð. Svo
dró ég Bigga með mér á eitthvað sem ég hélt að væri sýning um sögu
geðveikinnar og hélt að væri rosa spennandi en neeeei var þetta
ekki bara vísindakirkju áróður! Og það fyndna er að Bigga sagði það
áður en við komum þangað: Pottþétt eitthvað vísindakirkju-scam. Ég:
Nei oh ertu alveg, þetta er bara sýning um geðveiki og e-ð. Meira
fólkið. Þetta var heilaþvottur sem byrjaði sakleysislega og fór svo
stigvaxandi og fjallaði í stóru dráttum um það að geðlæknar
heimsins væru með samsæri gegn öllum heiminum og allt vont sem
einhverntíman hefur gerst er þeim að kenna. Til dæmis: Marylin
Monroe talaði við geðlækninn sinn í 3 tíma; daginn eftir fannst hún
látin! Og hið sama um Kurt Cobain og alla fræga sem hafa dáið. Svo
endaði þetta á: You're safe as long as we are here. Og við
útganginn stóð svona "lokkari" sem við læddumst framhjá til að fá
ekki heilu romsuna og eyðublöð til að selja úr okkur sálina. Ég
sagði Bigga að leyfa mér aldrei að velja aftur.
Þetta er komið gott tror jeg.
Hejsa!
Guðný
»
17.01.2007 19:46:51 / Guðný
Hellú, held ég verði að fara að skrifa eitthvað! Nú er skólinn
að komast á gott ról, hef fengið að prófa margt og mikið, t.d. að
sauma, setja rúllur í hár, sulla í málningu og nudda andlit. Í dag
vorum við svo að greina húðgerðir og ég er með blandaða húð sem ég
vissi, en kennaranum fannst ég svo gott dæmi yfir feitt T-svæði
(enni, nef, haka) að ég var notuð sem kennsluefni: Komið og finnið,
svona er feit húð! Og fékk 20 putta í andlitið. Veeeei! Og svo
þóttu freknurnar mínar eitthvað topic. Ég elska freknurnar mínar,
fokk off! En þetta er mjög fínt bara. Ég er þriðja elst í bekknum,
þetta eru mest 15-17 ára stelpur og þroskinn eftir því (eða minni).
Þeir sem eru eldri en ég er ein tyrknesk sem er já, tyrknesk, og
svo ein tveggja barna móðir sem er fín.
En já, með engri heimavinnu hef ég allt í einu gríðar mikinn
tíma á mínum höndum. Gæti verið að ég fái smá vinnu, það
á eftir að koma í ljós, en annars er ég byrjuð að hlaupa aftur.
Ekki veitir af. Blúbb blúbb. Biggi er ennþá duglegri, þeir eru þrír
hérna á kollegíinu sem vakna klukkan 7 og fara út að hlaupa og fara
svo í ræktina uppi og hamast.
Á föstudaginn er ég að fara í afmæli hjá einni úr gamla bekknum
mínum og eftir það er allur árgangurinn að fara á einhvern gay-bar
niðri í bæ. Það verður stuð býst ég við Svo þarf ég að fara í
það að kaupa mér fataskáp, geri það um helgina og svooo koma
myndir.
 
Var að skoða Kúbumyndir frá Elínu.
Ég er svo veik fyrir svona hafi og strönd, get látið mig dagdreyma
um suðrænar slóðir tímunum saman...
Guðný aka Signora Guðný Pina Colada Banana Hammock Tropic
»
09.01.2007 20:10:38 / Guðný
Próf dauðans er búið! Áður en lengra er haldið vil ég segja að
við náðum því, og þar með önninni allri, húrra fyrir Hermínu!
Anyway, okkur fannst við vera vel undirbúin, en svo svoleiðis
dru****u kennararnir yfir verkefnið okkar og við höfðum varla undan
að verja það. Umræðurnar voru á dönsku en ég fékk að tala ensku, og
ég náði ekki alveg að fylgjast með öllum umræðunum, og svo segir
kennarinn við mig: Þú verður nú líka að segja eitthvað! Og gaf mér
spurningu úr þeim kafla sem ég hafði einmitt ekki skrifað og vissi
ekki neitt um og það var það vandræðalegasta augnablik sem ég hef
lengi lifað og ég fann blóðið rjúka upp í kinnar, hendur og röddin
skulfu og ég hreinlega man ekki hvað ég sagði en það var ekki
gáfulegt og ekki í samhengi. Þessi klukkutími var einhver
ömurlegasti og vandræðalegasti sem ég hef lifað. By gone! Bless HA
kom. Við fórum á barinn eftir á og fengum okkur smá taugaróandi
öl.
Að öðru, við erum búin að kaupa okkur myndavél og erum búin að
endur innrétta íbúðina, kemur vel út, erum búin að útbúa smá
skrifstofu á neðri hæðinni og víxluðum sófanum og
sjónvarpsskenknum. Svo þegar ég kaupi fataskáp verður efri hæðin
líka fín. Set inn myndir þegar allt er ready.
Fyrsti skóladagurinn var i gær, í nýja skólanum altså. Lýst bara
vel á, reyndar vesen að þurfa að skrópa í dag út af prófinu, það
var fyrsti alvöru dagurinn. Kennararnir eru allt skrýtnar konur í
furðulegum fötum og með undarlegt hár. Eiga að kenna fatahönnun,
stíl, hárgreiðslu og förðun? Ég verð örugglega undir-menntuð eftir
þennan lærdóm.
Og síðast: Ekki eiga danskan kærasta! Því þeir myrða þig bara,
ok? Bara slútta þessu núna og flytja úr landi! Undanfarna 3
daga hafa tveir Danir drepið kærustur sínar og börnin sín, og slíkt
gerist að meðaltali 25 sinnum á ári hérna í Danmörku! Mikið er ég
ánægð með minn íslenska mann.
Kv. Guðný Olsen
»
06.01.2007 11:26:19 / Guðný
Ég veit ekki hvaða blogg leti þetta er hjá mér! En það er svosem
nóg að segja frá.
2006 er búið! Það var óvenjulegt ár sem einkenndist af mikilli
fráveru frá Íslandi! Ítalía átti fyrstu fimm mánuðina, það var ansi
spes en eins og allir sögðu mér þá: Þú átt eftir að hugsa til
dvalarinnar með gleði seinna meir. Og það er bara nokkuð satt, ég
fékk að heimsækja marga staði svo sem Feneyjar, Alpana, Napólí,
Amalfi ströndina og auðvitað Róm oft í viku og gaman að geta sagst
rata vel um borgina og hafa séð allt það merkilega sem þar er.
Lærði smá ítölsku, lærði að lifa af í ítalskri umferð, lærði að
meta ólífur, vín, Panettone og eyddi miklum tíma í hugsanir um hið
mannlega eðli. Náði mér í brúnku, missti nokkur kíló (sem þó hafa
fundið leiðina til baka núna) og saknaði Bigga míns heil ósköp. NÚ,
eftir þetta eyddi ég sumrinu heima í Hveratúni og það var
yndislegt, fór á reunion á Akureyri og það var æðislegt að hitta
alla gömlu bekkjarfélagana! Í ágúst fórum við Biggi aftur til
Danmerkur og ég byrjaði í Copenhagen Business School, mikið stress
og mikil taugaveiklun! danskan hefur samt troðist inn í
hausinn á mér sem aldrei fyrr! Við fengum flotta íbúð, kynntumst
góðu fólki, mikið djamm og mikið gaman.
Ég held að 2007 verði alveg frábært og til dæmis sé ég fram á
heimsókn minnar kæru Völu og hennar manni Birki, og svo eru Damien
Rice tónleikar á döfinni líka! En áður en ég get farið að hlakka
til þá þarf ég að komast yfir prófið á þriðjudaginn! Mitt eina próf
á þessari önn, það er munnlegt og ég er með hnút í maganum! Þegar
þessari önn er náð þá gef ég CBS frí í bili, fer að læra Stil og
design og nýt lífsins! Hvað ég sæki um fyrir næsta haust er svo
ekki ákveðið.
Þetta var minn annáll Bless í bili,
Guðný
ps. og nú orðin myspace lúði! /thorfridur
»
|
|