Dr. Þórfríður
29.01.2008 21:46:52 / Guðný

ice ice baby

Halló, mesta og besta jólafríi nokkurn tíman er hér með lokið... eða því lauk þegar við komum aftur to the D in the K núna fyrir viku síðan. Æðislegt að vera svona lengi heima, fékk að upplifa vetur með snjó og öllu saman! Alveg magnað. En um leið og við stigum fæti hér á grundu fór ég í það að slökkva elda um allan bæ, það biðu náttúrulega bunkarnir af pósti hérna heima, og sumt bara misskilningur... En það þurfti að redda ýmsum málum, læra fyrir próf þurfti ég líka og stunda vinnuna mína, en fyrir það var ég frekar stressuð, þar sem ég er búin að flytja mig um set og segja upp. Fer þó ekki langt, bara aðeins innar í terminal 2 en boy og boy ég get ekki beðið, er pirruð á vinnuaðstöðu, launum og vinnufélögum sem elska allt drama og draga mig inn í mál sem ég reyni að forðast sem heitan eldinn! En já, prófið gekk glimrandi vel, og ég er í viku fríi núna, aldeilis margt sem á að gerast í þessu fríi en eins og alltaf verður það ekki að neinu... pff allt í lagi...

Á morgun er dinner með vinnunni og flugvalladjamm eftir það, vinna um helgina og aftur í skólann á mánudaginn... Sama rútínan, skrölta í strætó í klukkutíma, labba í næðingskulda... Já maður verður svo góðu vanur að vera á Íslandi, keyrandi allt oh unaður. Skella innkaupapokunum í skottið og ekki dröslast með þá í hvorri hendinni og axlirnar við það að poppa úr liðnum. Ég er líka í því ferli núna að venjast danska vatninu aftur... Það verður komið eftir viku, ég finn ennþá kalkbragðið. Sírenuvæl og umferð, frekar erfitt að venjast því aftur eftir mánaðar svefn í algjörri þögn og myrkri. Sveitasælan :) En man alive, það var frekar ljúft að komast í auða jörð og 4 gráður... versus -10° og snjóroghálka. Ég hef ekki séð svona mikinn vetur í áratug, það var svo gaman, 60 cm jafnfallinn snjór heima, tréin að sligast undan þunganum, svo ótrúlega fallegt! :)

 

Heima í Hveratúni

Brrrr kuldalegt

Vörðufell og hveragufan

Lítið frosið strá

Pretty pretty

Og Marín sys vígaleg með grýlukerti

 

Þetta var janúar í hnotskurn, ég kem svo með report á febrúar einhverntíman þegar fer að vora :p

 

Love

 

Guðný


» 7 hafa sagt sína skoðun